top of page

Brúðkaup Fígarós/The Marriage of Figaro - Kammeróperan í samstarfi við Borgarleikhúsið

  • snaefridursol
  • Feb 2
  • 1 min read

Snæfríður tók þátt sem aðstoðarleikstjóri í uppfærslu Kammeróperunnar á Brúðkaupi Fígarós sem verður frumsýnd í Borgarleikhúsinu í byrjun febrúar.


Greifinn og greifynjan eru ungt og upprennandi athafnafólk sem hefur tekist hið ómögulega og byggt upp farsæla starfsemi í kringum vínrækt í Mosfellsbæ, en ekki er allt sem sýnist í þessari paradís. Þó að óperan sé í grunnin kómísk þá eru þar samt sterkir samfélagslegir þættir sem tala til okkar í dag og það er spennandi áskorun að yfirfæra þann hluta verksins yfir á nútímasamfélag. Í þessari útgáfu óperunnar láta starfsmenn vínræktuninnar óréttlæti og kynferðislega áreitni greifans ekki viðgangast og snúa á yfirmann sinn (með aðstoð greifynjunnar) til að sýna honum í tvo heimana.

Áhorfendur eru dregnir inn í heim óperunnar strax og þeir mæta í leikhúsið en áður en sýningin sjálf hefst býðst gestum að taka þátt í vínsmökkun sem greifinn stendur fyrir.

Verkið er styrkt af Sviðslistasjóði.


///


Snæfríður took part as the assistant director in Kammeróperan's production of The Marriage of Figaro, premiered in beginning of February in the City Theater of Reykjavík.



ree

 
 
 

Comments


Recent Posts
Archive

© 2023 by Sasha Blake. Proudly created with Wix.com

bottom of page