top of page

Innkaupapokinn - Kriðpleir og Elísabet Jökuls

Snæfríður var dramatúrg í sýningunni Innkaupapokinn eftir leikhópinn Kriðpleir og Elísabetu Jökulsdóttur, en sýningin var frumsýnd í Borgarleikhúsinu 28. febrúar síðastliðinn.


Leiksýningin Innkaupapokinn er vefur sem leikhópurinn Kriðpleir spinnur umhverfis veröld Elísabetar Jökulsdóttur og leikrit hennar „Mundu töfrana“. Í verki Elísabetar, sem hún skrifaði fyrst árið 1992, leita Ella og Trúðurinn bróðir hennar að „Barninu“ til þess að færa því tár svo það geti syrgt pabba sinn og haldið áfram eigin tilveru. Handritið hefur verið hálfgert olnbogabarn í íslensku leikhúsi í rúmlega 30 ár og aldrei ratað á svið þrátt fyrir þrotlausar

tilraunir höfundar og stöðug endurskrif. En í kjölfar þess að Ragnar Ísleifur Bragason, meðlimur í leikhópnum Kriðpleir frétti af þrautargöngu Elísabetar hefur ný von kviknað því Ragnar vill óður og uppvægur koma Elísabetu,

frænku sinni, til bjargar með hjálp félaga sinna úr leikhópnum. Sumir gætu sagt að þetta væri eins og að fara úr öskunni í eldinn. Það er að minnsta kosti ekki vandræðalaust að lífga við gamlan galdur …




 

Comentarios


Recent Posts
Archive

© 2023 by Sasha Blake. Proudly created with Wix.com

bottom of page